Psalms 77

1Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Asafs-sálmur. 2Ég kalla til Guðs og hrópa, kalla til Guðs, að hann megi heyra til mín. 3Þegar ég er í nauðum, leita ég Drottins, rétti út hendur mínar um nætur og þreytist ekki, sál mín er óhuggandi. 4Ég minnist Guðs og kveina, ég styn, og andi minn örmagnast. [Sela] 5Þú heldur uppi augnalokum mínum, mér er órótt og ég má eigi mæla. 6Ég íhuga fyrri daga, ár þau sem löngu eru liðin, 7ég minnist strengjaleiks míns um nætur, ég hugleiði í hjarta mínu, og andi minn rannsakar. 8Mun Drottinn þá útskúfa um eilífð og aldrei framar vera náðugur? 9Er miskunn hans lokið um eilífð, fyrirheit hans þrotin um aldir alda? 10Hefir Guð gleymt að sýna líkn, byrgt miskunn sína með reiði? [Sela] 11Þá sagði ég: ,,Þetta er kvöl mín, að hægri hönd Hins hæsta hefir brugðist.`` 12Ég víðfrægi stórvirki Drottins, ég vil minnast furðuverka þinna frá fyrri tíðum, 13ég íhuga allar athafnir þínar, athuga stórvirki þín. 14Guð, helgur er vegur þinn, hver er svo mikill Guð sem Drottinn? 15Þú ert Guð, sá er furðuverk gjörir, þú hefir kunngjört mátt þinn meðal þjóðanna. 16Með máttugum armlegg frelsaðir þú lýð þinn, sonu Jakobs og Jósefs. [Sela] 17Vötnin sáu þig, ó Guð, vötnin sáu þig og skelfdust, og undirdjúpin skulfu. 18Vatnið streymdi úr skýjunum, þrumuraust drundi úr skýþykkninu, og örvar þínar flugu. 19Reiðarþrumur þínar kváðu við, leiftur lýstu um jarðríki, jörðin skalf og nötraði. 20Leið þín lá gegnum hafið, stígar þínir gegnum mikil vötn, og spor þín urðu eigi rakin. [ (Psalms 77:21) Þú leiddir lýð þinn eins og hjörð fyrir Móse og Aron. ]
Copyright information for Icelandic